Sunday, August 31, 2008

Ég er búin að vera grasekkja um helgina og notaði tækifærið og dreif mig á flóamarkað, "loppemarked" eins og það kallast hér í Noregi, er mjög vinsælt fyrirbæri hér og flestir barnaskólar/unglingaskólar hafa markaðsdag, bæði á haustin og vorin. Yfirleitt er það skólahljómsveitin sem stendur fyrir því til að safna pening. Ég skrapp semsagt á flóamarkað í Sagene-skóla í gær og verð bara að segja að sjaldan hef ég verið á jafn slöppum "loppis" .. :/
Svo það var pínu skúffandi. Ég keypti þó, nokkra reyfara og svo nældi ég í ljóðabók eftir Stein Mehren (helsta núlifandi ljóðskáld norðmanna) handa KJóa mínum :) Svo hann fær smá surprise þegar hann kemur tilbaka. Honum finnst nefnilega mjög lítið til þessara flóamarkaðsferða minna koma og er ekkert að leyna þeirri skoðun sinni heldur. Hinsvegar náði ég einu sinni í bók eftir Ivo Andrich (sem fékk Nóbelsverðlaunin 1961, það er lítið fáanlegt eftir hann á norsku núna) og gaf Ragnari kollega mínum (sem hefur mikið dálæti á honum) og KJ er varla búinn að fyrirgefa mér það enn. Það þótti mér nú ágætis Litla Gula Hænan dæmi..
Þetta var samt voða huggulegur dagur -þrátt fyrir slappan flóamarkað- langt síðan ég hef bara verið að rölta ein í bænum á laugardegi og í ofanálag var svo ljómandi gott veður, svo ég gekk alla leið frá Sagene niður í bæ. Gekk þá í gegnum Grünerløkka sem er voða kósí og líflegt hverfi, með mikið af kaffihúsum og litlum búðum, fékk mér gott kaffi á ítölskum kaffibar og keypti splunkunýja kókosbollu í Den lille kokosbollefabrikken. Jömmí!
Var að hugsa um að fara út í smá gönguferð í dag, en það er hálf rigningarlegt úti, svo kannski ég hreiðri bara um mig í sófanum og lesi í þessum reyfurum sem ég nældi í í gær :)

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Eg helt thu aetladir ad segja ad thu hefdir keypt myndina sem prydir bloggid a floamarkadnum og aetladi ad fara ad ofundast!!!! Annars for eg bara nokkur ar aftur i timann thegar eg las bloggid thitt...thaer voru nu ekki ofaar floamarkadsferdinar okkar i den...! Manstu t.d. thegar vid barum nidthungt bordstofubordid okkar heim? Tha hefdi nu verid unadslegt ad geta gert pit-stop i kokosbolluverksmidju...!
Kv. Rut et al

2:40 PM  
Blogger Helga said...

Hehe, já :) Hefði nú getað verið stórtækari í innkaupum ef KJói hefði ekki verið á bílnum - og ef það hefði verið eitthvað bitastætt á þessum blessaða markaði. Nei, myndina fann ég bara á netinu, á víst að vera af flóamarkaði :) Já, það eru jafnmargar hitaeiningar í 1 vínarbrauði og 8 kókosbollum!! Vona hinsvegar að ég komist á ögn betri markaði þegar líður á haustið. Sem minnir mig á að ég gleymdi að hringja í gær!!! :/

3:59 PM  
Blogger Kristin M said...

Mmmmmmmm. Kókosbollur. Eru þær eins og íslensku kókosbollurnar???? Mikið rosalega hlakka ég til að borða svoleiðis þegar ég kem heim um jólin.

10:50 PM  

Post a Comment

Links to this post:

Create a Link

<< Home