Friday, August 01, 2008

Við KJói erum orðin svo miklir flottræflar að við skruppum um daginn og keyptum okkur jeppling (Honda crv). Hann hefur lengi langað í svona bíl (jeppling, altsvo) og loksins kominn með brúklega átyllu til að kaupa hann, heimreiðin okkar er ca 600 metrar og malarvegur og allt upp í móti og hætt við hálku á veturnar. Ég sagði nú bara að eins og sönnum íslendingi sæmdi, léti ég ekki sjá mig á þessum bíl, fyrr en hann væri kominn með ljóskastara, talstöð og almennileg 40 tommu dekk - og hana nú!

7 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Til hamingju med bilinn...vona bara ad hann se ekki alltof mikil eydsluklo...thad er vist ekki alltof mikid af oliu eftir i heiminum...og verdid komid uppur ollu valdi!
Kv. af stigvelinu, Rut

9:13 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hvað voða eruð þið grand á því, hús, reiðhjól og bíll:)) Svona á lífið að vera. Til lukku með bílinn, njótið lífsins, kveðja frá Ak Sigga Gréta

2:32 AM  
Blogger Helga said...

Já, enda er ég loksins komin í mitt rétta element, hús út á landi, jeppi, 50 tommu Pioneer flatskjár og splunkunýtt reiðhjól... Hehe.. ;)

7:40 PM  
Anonymous Anonymous said...

ha, eruð þið líka búin að fá ykkur 50 tommu flatskjá?

systa

12:23 AM  
Blogger Helga said...

Við og við.. KJói er óstöðvandi, þegar hann fyrst setur í gang.. Svo er talað um að konur séu eyðsluklær, ég get lofað ykkur að þegar ég fer á shoppingspree, þá erum við að tala um annan skala.. Ekki svo að skilja að það er algjör lúxus að horfa á dvd á nýja skjánum, eina er að KJ er skyndilega farinn að draga lappirnar þegar ég minnist á sjónvarpsherbergið/bókasafnið í kjallaranum og má ekki heyra á það minnst að hafa sjónvarpið niðri.. :/ Óheppni að kjallarinn var "á floti", svo við gátum ekki bara sett það niður strax. En ég er ekki búin að segja mitt síðasta í þeim málum..

8:17 AM  
Blogger sperla said...

Gott skot hjá þér á flottræfilshátt íslendinga ;) Til hamingju annars með allt heila "klabbið" :)
Bestu kveðjur að neðan

10:48 AM  
Anonymous Hrundski said...

Til lukku með þetta alltsaman. Við eigum lika ogedslega stort sjonvarp..... og jeppa.... algjör nauðsyn hehhehee Jeppinn til að fara í sjoppuna og ná í DVD og nammi ;)og svo horfir maður á Sex and the city :p

12:33 PM  

Post a Comment

Links to this post:

Create a Link

<< Home