Paul Newman er horfinn á vit feðra sinna, eftir langvarandi baráttu við krabbamein. Hann var svo ótrúlega flottur og sjarmerandi leikari. Las einu sinni sögu í Úrvali (sennilegast innsend lesendasaga frá ameríska Reader´s Digest) um konu sem stóð í röð í ísbúð, svo verður henni litið um öxl og sér Paul Newman og hún varð algjörlega starstruck að sjá þennan glæsilega mann þarna, svo þegar kom að henni í kassanum, var svo mikið fát á henni að hún setti ísinn beint ofan í töskuna sína :) Henni þótti þetta auðvitað mega pínlegt móment, en hann hafði verið svo huggulegur og hlegið með henni (og ekki að henni) og virkaði mjög down to earth, svo það hafði ekki verið eins pínlegt og það hefði getað verið.Veit ekki afhverju, en hef aldrei gleymt þessari sögu þrátt fyrir að það eru amk 20 ár síðan ég las hana.


2 Comments:
hann var flottur . Fyrsta myndin sem ég sá með honum var cool hand Luke. Alveg ógleymanleg mynd.
anna
Ég held ekki að ég hafi séð þá mynd, en Butch Cassidy & The Sundance Kid er í miklu uppáhaldi hjá mér :)
Post a Comment
Links to this post:
Create a Link
<< Home