Wednesday, October 29, 2008

Þá er veturinn genginn í garð.. brrr.. Þegar við vöknuðum áðan, var bara þvílík hríð úti, kom hálf flatt upp á okkur, var ekkert "þesslegt" í gær.
Verð að viðurkenna að ég er pínu fegin að við erum á bíl með fjórhjóladrifi núna ;)
Héðan úr Sörkedalnum er annars allt gott að frétta, við erum smátt og smátt að koma hlutunum í horfið og erum nú búin að setja upp bókahyllur eftir einum langveggnum í stofunni og þar er ég búin að raða öllum listabókunum mínum :) Mig grunar að það séu fleiri kassar í kjallaranum, en er of slæm í bakinu þessa dagana til að fara niður og sækja sjálf. Ég er reyndar í veikindaleyfi þessa dagana, er að öllum líkindum með isjias, sem stafar af brjósklosinu sem ég fékk hér um árið. Var svo slæm í fyrradag að ég gat varla gengið ég fann svo til, fór svo til læknis í gær og var þá mikið betri, en var samt sykemeldt til 5 nóvember. Ég vona bara að það sé ekki eitthvað álíka í bígerð og þegar ég fékk þetta fyrst það var ekki sérlega skemmtilegt.
Við erum annars að fara til London í næstu viku :) Erum búin að tala um það hérumbil síðan við kynntumst og loksins kemur að því! :D Ég hlakka mikið til, enda 12 ár síðan ég var þar síðast! Það verður reyndar pínu skrýtið að stoppa "bara" 4 nætur, mér finnst við áreiðanlega varla hafa lent þegar við förum tilbaka. Við fengum ferðapening í brúðkaupsgjöf frá pabba og Þóru og notuðum hann í þessa ferð.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Goda ferd til London....og Helga, NU laetur thu bara reyna a kanilinn!
Kv. Rut

7:26 AM  
Blogger Helga said...

Hehe, var einmitt að hugsa um það í fyrradag.. ;) Gott "til bakverk"..

8:25 AM  

Post a Comment

Links to this post:

Create a Link

<< Home