Sunday, February 22, 2009

Hér er allt að fenna í kaf, þessi dökki vinkill á myndinni er handriðið á veröndinni okkar! Það er voða kósý hér á veturnar, en verð þó að viðurkenna að mér þykir þetta orðið gott núna. Þó ekki væri nema vegna dýranna í skóginum, en bæði elgur og rádýr eiga erfitt ferða sinna og að finna fæðu, þegar er svona djúpur snjór.
Það er annars voða lítið að frétta af okkur, hér gengur lífið sinn vanagang og fátt sem brýtur upp tilveruna um þessar mundir. En er það ekki eins og sagt er, engar fréttir eru góðar fréttir? :)

0 Comments:

Post a Comment

Links to this post:

Create a Link

<< Home