götunni þar sem skíðabrautin fer yfir veginn - skíðabrautin kemur þvert á frá vinstri). Við fundum heldur betur fyrir því um daginn, en við erum með rotþró og vorum búin að panta bíl til að koma og tæma, kvöldið áður segir Karl Johan, jæja, ætli sé ekki best að ég fari út og grafi upp lokið.. Svo fer hann út og eftir ca 1 tíma hringir gemsinn minn og er það bóndinn sem grátbiður um aðstoð við að finna lokið. Svo ég fer út og við mokum í 1 tíma í viðbót og urðum bara að hætta, við fundum ekki lokið fyrr en í þriðju atlögu.. :/ Það er annars voða kósí hérna á veturnar, verður reyndar ansi kalt, fór niður í u.þ.b -30 um daginn, en sem betur fer erum við með arinn og geymslu fulla af eldivið í kjallaranum :)
Foreldrar Karls Johans, Inga og Kåre, komu í heimsókn í gær, þau eru svo sæt, undanfarið koma þau ekki öðruvísi en að hafa með gjöf handa mér. KJ hefur nefnilega laumað að þeim að ég sé svo kulsæl (mér er alltaf kalt á höndum og fótum), svo í jólagjöf fékk ég hlý náttföt og teppi, svo komu þau við nokkrum dögum seinna og voru þá með kanínuullarsokka handa mér, svo í lok janúar færðu þau mér ullarteppi og í gær komu þau í mat og tóku þá með ægilega fína ullarsíðbrók og langerma ullartreyju :) Ekki amalegt að fá þau í heimsókn :) Ég var hinsvegar súperhúsmóðir í gær, tók á móti þeim í nýþrifnu húsi, með nýbökuð rúnstykki, svo fóru KJ, Kåre og Signe á skíði og á meðan drukkum við Inga rauðvínsglas meðan ég eldaði biff stroganoff og kartöflumús og skellti í peruköku í desert.. ;)


2 Comments:
jolakortastemmning hvad...!
æ hvað mig langar að koma í heimsókn í skíðaferð, biff stroganoff, rauðvínsglas, arin-kos, og kaffi á kaffihúsinu ykkar...
Post a Comment
Links to this post:
Create a Link
<< Home