Mér áskotnaðist nýverið mjög flott bók um áströlsku listakonuna Cressida Campbell (kíkið endilega á síðuna), sem vinnur í spennandi grafíktækni. Hún teiknar fyrst á tréplötu, síðan sker hún út sjálfa línuteikninguna og svo málar hún plötuna með vatnslitum (minnir mig) og að því loknu gerir hún eitt grafíkþrykk af plötunni. Þannig að hver mynd kemur í 2 eintökum, annarsvegar á pappír og hinsvegar á tréplötunni og kemur mjög skemmtileg áferð. Ég rakst á grein um hana í Ástralska Vogue Living og Kjói minn var svo sætur í sér að panta bókina handa mér á netinu :) Ég var reyndar pínu spæld hvað var lítill teksti í bókinni, yfirleitt hrjáir það mig lítið þegar um myndlistarbækur er að ræða, en í þessu tilfelli hefði ég gjarnan viljað lesa um tæknina sem hún hefur þróað.Við erum annars búin að hafa það mjög gott um páskana, þvílíkur lúksus að vera frá vinnu í 5 daga! :) Við erum reyndar búin að vera mjög kvefuð svo ég hef bara tekið því rólega, finn að ég er enn hálf tuskuleg með hitaslæðing og verð móð við minnstu áreynslu.


0 Comments:
Post a Comment
Links to this post:
Create a Link
<< Home